Börnin Við Tjörnina

Paroles

Gaman er fyrir hin góðu börn að ganga med pabba út að tjörn sjá þar lítinn bra-bra-bra og börnin skemmta sér, ha-ha-ha

Gefa honum brauð að bíta í börnin hafa svo gaman af því saddur verður bra-bra-bra og börnin skemmta sér, ha-ha-ha

Úti í hólma á sér ból ungunum sínum veitir skjól allir eiga þeir sömu sæng sofa undir mömmu væng

Fara að reyna að fleyta sér fús að kenna þeim, mamma er hún er þeirra víta vörn verndar og fæðir sín litlu börn

Eitt sinn lítinn unga ég sá auminginn villtist mömmu frá sífellt í hring hann synti þar og sá hana ekki neins staðar

Mamma vissi vel um það og á vængjunum sínum kom þar að ósköp glaður vard unginn thá og öruggur sinni mömmu hjá

Ef að tjörnin okkar frys uti er gaman að sleða á ís þá er oftast úti svalt og aumingja bra-bra þá svo kalt

Med kalda fætur á köldum ís, króknar stundum, deyr og frys börnin harma bra-bra sinn og búinn er söguþátturinn

Voir les traductions sur le forum

Infos